Við Gylfi framkvæmdum vísindalega tilraun fyrir nokkrum dögum, reyndar 27. Júlí
þar sem við mældum stoll hraða tf-137 vélar okkar við ákveðin skilyrði.
Gróft séð, vorum við að sjá ( ekki með farþega ) stoll hraða í kring um 60 kílómetra á klukkustund.
Með flöpum var stoll hraðinn eitthvað rétt þar undir, ekki mikill. ( Sigurjón framkvæmdi testið )
Við settum síðan vortex generatorana á vænginn, en einungis fyrsta meterinn frá vængbörðunum í átt að
miðjuásnum beggja megin, og tókum síðan flugið aftur.
Þá kom í ljós, að stoll hraðinn var kominn niður í 50 kílómetra á klukkustund.
Við bættum síðan allri röðinni við, og sama test er ekki búið að mæla, nefnlega án farþega, en það var staðfest
að 50 km/h fengist með farþega í vélinni..
Myndirnar stækka ef smellt er á þær