skötu fundir 2001-2023
Skötu fundir
Skatan 2001
Skatan 2002
Skatan 2003
Skatan 2004
Skatan 2005
Skatan 2006
Skatan 2007
Skatan 2008
Skatan 2009
Skatan 2010
Skatan 2011
Skatan 2012
Skatan 2013
Skataan 2014
Skatan 2015
Skatan 2016
Skatan 2017
Skatan 2018
Skatan 2019
Skatan 2020
Skatan 2021
Skatan 2022
Skatan 2023
Jólakvæði 2023
Í hönd fer núna hátíð ljóss og friðar
og heilög kirkja boðar frið á jörð.
Á þeirri vegferð okkur ekkert miðar
og ekki nokkur teikn um sáttagjörð
Vígtólunum herir beittir beita.
brenna að drepa allt sem finna má;
Eymd og kvölum ekki nokkru skeyta
og ekki er nokkra miskun þar að sjá
Senn hátt og hvellt við hringjum jólabjöllum
er heilög leggjast yfir falleg jól,
Þá hefjum vora raust og hátt við köllum:
“Herra Drottinn, veittu frið um ból”
Skötukvæði 2023
Ef að við þér blasir böl,
Þá barn er lagt í jötu,
er best að fá sér áka og öl
og ögn af kæstri skötu.
Eins og ég hef áður rætt
og afar vel ég þekki:
“Skatan allt þitt böl fær bætt
og bragðið svíkur ekki”.